Nú er Landsmótið nánast að verða búið og aðeins 3 klukkutíma keppni eftir af frjálsíþróttakeppninni sjálfri, þar sem UMSK hefur tæplega sjö stiga forystu á okkur í ÍBR, en við ætlum að taka þau í NEFIÐ á morgun, enda við með miklu fleiri keppendur og miklu meiri líkur þá á stigum
. En, í dag var ég að keppa í 100 m hlaupi og lenti þar í 7.sæti sem er mjög gott en einu sæti samt frá úrslitum
sem mig langaði verulega mikið að keppa í. En svona er þetta, ég tek þessu eins og maður og horfi á jákvæðu hliðarnar, ég meina, þetta er fyrsta landsmótið mitt !! og ég er búinn að æfa frjálsar í 5 mánuði. Þannig
að ég geng mjög sáttur frá keppni núna
. En svo keppti ég í stangarstökki þar sem ég stökk í raun vonum framar, stökk 3.00 og 3.40 í fyrstu tilraunum, og var svo tæplega farinn yfir 3.80 nema rak mig í á leiðinni niður, því ég var ekki búinn að snúa mér yfir á bakið í loftinu og rakst þess vegna í ránna. En engu að síður mjög sáttur með þennan árangur. Fékk meira að segja medalíu
. Svo var keppt í 4x100 m boðhlaupi þar sem ég var á fyrsta sprett og hljóp eins og brjálæðingur útúr blokkinni og inní beygjuna !! alveg á milljón milljón %
, en þar hlupum við á 43,91 sem tryggði okkur 4.sæti, og þar með medalíu þar
. En jæja, núna var þetta bara smá yfirlit yfir það sem gerðist í dag. Svo á morgun að þá keppi ég í 1000 m boðhlaupi þar sem hlaupnir eru 100, 200, 300 og svo loks 400 m sprettur sem er samtals 1 km eða 1000m. Svo keppi ég á móti Oscari Pistorius, frá S-Afríku sem hefur enga fætur fyrir neðan hné og er klikkað góður í 400 m hlaupi, og þar ætla ég að keppa við hann, í 400 m hlaupi, nema ég hleyp bara 360 m því þessi gaur er ótrúlega fljótur, hann á 46,54 held ég og það er magnaður tími, ég á 54,69 hahah
, en ég reyni mitt besta.
Kveð að sinni, bless bless.
Og þett er hann, Oscar Pistorius frá Suður Afríku.
Tónlist | 8.7.2007 | 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
. Nú þarf ég að koma ykkur up to speed you know
. Já, sem
sagt, ég er að keppa á Landsmóti UMFÍ núna og gengur bara drulluvel til að byrja með. Ég var að keppa í 100 m hlaupi áðan, og getiði hvað, ég bætti tímann minn um 14 sekúndubrot !!! Það er klikkað því bæði, ég er ekki búinn að vera að æfa hlaup sérstaklega undanfarna mánuði, og þetta er annað 100 m hlaupið sem ég keppi í !! Tíminn fór úr 11.68 sekúndum og niður í 11.54 sekúndur !!
Djöfull er ég sáttur með það. Auk þess sem að þessi tími var 6 besti tíminn af 22 sem kepptu á móti mér og ég er kominn í milliriðil og miðað við þennan tíma að þá er ég á leið inní úrslitahlaupið
. En ég ætla samt að gera mér ekki of miklar vonir því það er einn maður sem stendur í vegi fyrir mér að ná í úslitin, og það er gaur sem er '83 módel og hljóp á 11.56 sem er ekki mikill munur en ég ætla að ná niður fyrir 11.5 á morgun og komast í úrlvalshóp unglinga í 100 m hlaupi. En svo er ég að fara að keppa akkúrat í 100 m hlaupi, milliriðlinum, kl 10 í fyrramálið, stangarstökki kl 14 þar sem ég ætla að ná yfir 3.80 m sem er mitt markmið, en ég sætti mig við 3.40 m með tilliti til aðstæðna, sem sagt að ég er bara búinn að vera að æfa stöng í 2 mánuði og það er margt sem má laga í stökkunum mínum, en ég held að 3.80 geti dottið inn ef ég er svakalega vel stemdur !!
. En jæja, þetta var bara smá lýsing frá landsmótinu, af minni hálfu
, skrifa aftur á morgun og læt vita hvernig mér hefur gengið
, see ya all.Íþróttir | 6.7.2007 | 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Andvaka, ætli það sé orðið sem ég get notað yfir líðan mína núna. Ég sit uppí rúmi og stari út í loftið og er bara alls ekkert syfjaður, jafnvel þótt ég sé búinn að vera á fullu að vinna og á æfingu og hjóla út um allar tryssur í allan dag. Ég er allsvakalegur furðufugl
. En allavega að þá hefur bloggið mitt legið niðri núna síðan í nóvember
, og ætli ég fari nú ekki að skella inn nokkrum öflugum bloggum þegar ég hef tíma
. En svo að segja, það sem er búið að gerast hjá mér síðan ég skrifaði síðast er ....... ég er byrjaður að æfa frjálsar með ÍR fyrir þá sem ekki vita, fékk vinnu í Útilíf í Glæsibænum, í veiði- og útivistardeildinni, og þar af leiðandi fékk ég hina skæðu veiðibakteríu aftur
eftir að ég kynntist honum Erni í veiðideildinni. Svo hjólar kallinn út um allt, í vinnuna, úr vinnunni á æfingu, af æfingu og heim, og ætli þetta séu ekki svona 10 - 15 km á dag sem maður er að hjóla. En ég veit það ekki, ætla mæla það núna fljótlega. Svo er ég að fara að keppa á Landsmóti UMFÍ, og keppi þar í stangarstökki fyrst og fremst, þar sem ég ætla mér að ná að fara yfir 3.80 m (íslandsmetið í mínum flokki er 4,33 m), sem ég tel nokkuð mögulegt, fyrst ég var næstum því farinn yfir 4.oo metra á seinustu æfingu
jafnvel þótt ég sé bara búinn að stökkva núna í 2 mánuði, sem er eeeekkkki neitt
!! svo fer ég í 100m hlaup og vonast til, ef ég næ góðu hlaupi, að ná undir 11,5 sek (heimsmetið er 9,77 sek), svo fer maður líka í 4x100 m boðhlaup þar sem við drengirnir ætlum að setja íslandsmet í okkar flokki, ég, Einar, Brynjar og Heimir rauði
. Það verður sko massíft !! en allavega ætla ég að segja þetta gott í bili, og set inn næst þegar eitthvað fréttnæmt gerist, veriði blessuð
. og hér höfum við svo stangarstökk í grófum dráttum svo þið vitið nú öll hvað ég er að tala um.
Tónlist | 29.6.2007 | 00:41 (breytt kl. 22:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hello all, how are we doing to day
. Alvöru enskustemning í dag
. Ég sit nú enn og aftur inni á bókasafni Kvennó og þarf að finna mér eitthvað að gera. Ahverju ekki bara að blogga ??
. Lítið hefur nú gerst síðan ég skrifaði síðast en það er alltaf gott að geta tjáð sig með reglulegu millibili
. Nú er til dæmis ákveðið að ég og annar gítarleikari frá Tónlistarskóla Kópavogs séum að fara að spila í Hjallakirkju núna nk. laugardag á skólaslitum Snyrtiskóla Kópavogs
. Það er aldeilis. Annars er nú bara lítið sem er að gerast hjá mér og meðlimum Háulindar 6 hópsins
. Nema hvað að hundurinn hann Jökull strauk aftur núna á mánudaginn. Djöfulsins asi er alltaf á þessum hundi sem er annars hið mesta rólegheitadýr. Hann dreif sig meira að segja yfir eina fjölförnustu götu í Lindahverfinu, Fífuhvammsveginn. Og þá er illt í efni því að hundar, öfugt við ketti, skilja ekki umferð. Hundar myndu hlaupa fyrir risastóra rútu á fleygiferð án þess að hugsa sig tvisvar um !!
. En sem betur fer gerði hann það ekki. Hann fór hins vegar uppá Hádegishóla sem eru þarna mjög nálægt og lék sér bara þar
. Þá er held ég ekki neitt fréttnæmt í þessari viku, see ya all later ;)
Bloggar | 8.11.2006 | 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aloha íslendingar og fleiri. Ég sit hér inni á bókasafni Kvennaskólans og læt mér leiðast, þótt það sýnist nú ótrúlegt. En ég er nýbúinn að koma úr dönskuritgerðarprófi, hún er mjög "örðuvísi" dönskukennarinn okkar. Í þessu prófi áttum við að vera búinn að horfa á einhverja mynd og svo koma og skrifa um hana, á dönsku
, og engar upplýsingar máttum við koma með okkur nema í stóra geymsluplássinu uppi í höfðinu. Ég skrifaði um The Shawshank Redemption sem er án efa ein besta mynd sem hefur verið gerð. Þessi mynd er engin Mission Impossible eða Die Hard, heldur frábær blanda spennu, sorgar, illsku, gleði, allar þær tilfinningar sem maðurinn býr yfir geta komið fram þegar maður horfir á þessa mynd, og ég mæli EINDREGIÐ með henni
.
Ég er svo að fara í íslensku á eftir og undirbúa andskoti stóra heilmildaritgerð sem ég á að gera, og það um táknmál. En ég tel mig vera kominn með nokkuð góðar heimildir þannig að engar áhyggjur þar á ferð
. Svo er ég að fara að spila á tónleikum í Salnum í kvöld, fyrstu tónleikarnir með nýja gítarinn, og mig hlakkar alveg ógeðslega mikið til að spila þarna. Hljómurinn í þessum gítar er svo fallegur og með hljómburð eins og í salnum að þá, ef ég næ að spila réttar nótur
, verður atriðið mitt mjög flott( þótt ég segi sjálfur frá, enda er tónverkið ekki af verri endanum, alvöru Endurreisnarverk
). En ég kveð að sinni, og munið að skrifa í gestabók ef þið vildum vera svo væn
. ........Lifiðheil..... Svo er hér meistaraverkið sem ég er að fara að spila á á eftir ;)
Tónlist | 6.11.2006 | 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 1.11.2006 | 13:55 (breytt kl. 21:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 1.10.2006 | 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sæl öll, og sérstaklega Steinar vinur minn sem er alveg orðinn hneykslaður á því hvað ég blogga lítið, en nú ætla ég að reyna að fara að breyta því. Það gæti orðið erfitt en ég mun reyna að halda þessari síðu gangandi.
Nú er ég eins og flestir vita byrjaður í Kvennaskólanum í Reykjavík, í 1.NF sem er bekkurinn minn. Þessi skóli er algjört æði, alveg eins og ég ímyndaði mér hann. Lítill, ótrúlega heimilislegur
og ekki síst hellingur af skemmtilegu fólki
. Og er ekki er stundaskráin mín af verri endanum, t.d. fer ég í skólann kl 12 á miðvikudögum, fer í einn tíma, klukkutíma pása, og svo annan tíma og þá er ég búinn
.
Svo er það líka að frétta að fyrir stuttu var ég á ferðalagi um Suðausturlandið og það ferðalag var eitt það besta sem ég hef farið í. Fórum í dagsgönguferð þar sem við löbbuðum fyrst upp svakalega hátt gil sem heitir Nautastígsgil og hækkuðum okkur um einhverja 600 metra á mjög stuttum tíma. Stoppuðum þegar við vorum kominn upp og sáum eitt fallegasta og besta útsýni sem þið getið ímyndað ykkur, nánast stórfenglegt fyrir náttúruunnandann. En hafið engar áhyggjur, ég tók myndir og þær munu koma í myndaalbúmið; ferðalag um SA land. En allavega, þarna vorum við, uppi á hálfgerðum hrygg, reyndar var þetta fjall, en eins og sumir vita að þá eru öll fjöllinn þarna á Suðausturlandi og Austfjörðum allsvakaleg, nánast endurtekning á hvoru öðru, há og frekar mjó. Og þarna stóðum við upp á miðju fjallinu og ætluðum okkur að labba niður dalinn sem var á hægri hönd, sá dalur heitir Hvannadalur og er alveg ótrúlega flottur. Fengum okkur aðeins að éta uppá fjallinu og hundurinn fékk sér smá blund, og það besta við það að hann sofnaði á innan við 10 sekúndum
. Allt í einu sáum við að við þyrftum að fara aftur niður þessa 600 metra en leiðin var ekki af verri endanum, allavega ekki fyrir mig. Þetta var risastór skriða sem lá alla leiðina niður, og steinarnir voru mjög litlir og fínir þannig að ég tók mig bara til og hoppaði bókstaflega niður alla skriðuna eins og algjör api, en það var þess virði ;).
Næst tók við ganga niður dalinn. Alltaf ný og ný fjöll að koma í augsýn, og ótrúleg náttúrufegurð, og best af öllu, allt ÓSPILLT !!!! Þessi dalur er ein af fáum náttúruperlum sem eru alveg ósnert. Þarna hafa kannski komið nokkrir smalamenn síðustu öldina ! En engan æsing yfir því, við héldum áfram og komum svo að stað þar sem annar dalur rann saman við Hvannadalinn og sameinaðist honum. Þar tókum við okkur smá pásu og fengum okkur aðeins að borða.
Allt í einu tekur pabbi eftir því að Jökull er eitthvað að þefa útí loftið og pabbi skyggnist aðeins um eftir rollum eða einhverjum húsdýrum og svo sér hann eitthvað
. Eitthvað brúnt færist til hinum megin við ána og lítur út eins og kind. Pabbi sér svo að þetta dýr hefur svakaleg horn, og þá fattar hann að þetta er hreindýr! Við sátum auðvitað alveg grafkyrr en ég vildi ólmur komast og taka mynd en mér var nánast haldið niðri
. Sem var gott því þetta virtust vera þrjú hreindýr, tveir tarfar og einn kálfur. Samt hlýtur annar tarfurinn að hafa verið kú en bæði fullorðnu dýrin höfðu alveg svakaleg horn. Hreindýrin ákveða svo að koma yfir ána, og sem betur fer að þá var vindurinn okkur hagstæður því hann blés að okkur. Þegar þau eru kominn yfir ána fer eitt dýrið með kálfinn aðeins á undan en hinn verður eftir á smá grasbletti við ána. Ég byrja að læðast að honum og er alltaf falinn fyrir honum þannig að ég gat komist í um 10-20 metra fjarlægð frá honum og tók þá eins margar myndir og ég gat þangað til að ég var farinn að halla mér það langt út úr runnanum sem ég faldi mig í að hann sá mig og hann skoppaði í burtu, alveg eins og kengúra! Ég reyndi að elta hann en Einar sagði að það þýddi ekkert því þau hlypu svo hratt og gætu auðveldlega hlaupið upp eitt stykki fjall.
Við héldum áfram þaðan og ég ennþá með þvílíkan spenning í mér því ég hef aldrei lent í öðru eins
. En næsti staður á dagskrá var svo Klukkugilið. Þetta gil er alveg ótrúlegt. Ef maður stendur uppi á fjallsbrúninni lægra megin við gilið að þá er þetta bókstaflega stórfenglegt, en ég gat ekki tekið það margar myndir því sólin skein akkúrat á móti mér
. En að horfa ofan í gilið var algjör lífsreynsla, ég var þá í fyrsta skipti alveg viðbjóðslega lofthræddur og skalf eins og ég veit ekki hvað.
. Þegar við vorum svo búin að horfa á Klukkugilið í smástund drifum við okkur svo niður á tjaldstæðið okkar þar sem bræður mínir og fleiri biðu eftir okkur.
Þessi ganga er svo sannarlega ein sú besta sem ég hef nokkurn tímann farið í. Lögðum af stað upp fjallið kl 11 og vorum kominn aftur um 7 leytið, og miðað við GPS tækið hans pabba löbbuðum við einhverja 11-12 km, nokkuð gott
. Auk þess að þá eru allar myndirnar úr þessari göngu og sjálfu ferða laginu í myndaalbúminu : Ferðalag um SA land í ágúst. (best að skoða myndirnar í réttri röð, þá fattar maður betur ferðina
)
Næsta dag fórum við á Höfn í Hornafirði og spáseruðum þar í einhverja klukkutíma og héldum svo lengra austur, og svo norður þangað til að við komum upp á Lónsöræfi, fallegasta hálendi Íslands. Þar tókum við tvær göngur og ein þeirra er ítarlega skilgreind í myndum og ég nenni varla að skrifa aðra svona lýsingu. En þið sjáið hvað þetta svæði er virkilega flott þegar þið skoðið myndirnar.
Ég segi þá takk fyrir mig og vona að þið hafið skemmt ykkur við að lesa þetta, við heyrumst hress, bless í bili.
Ferðalög | 30.8.2006 | 16:13 (breytt kl. 17:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Daginn gott fólk. Börkurinn mættur aftur hér með smá blogg. En ég var einmitt að klára að keppa í Reycup núna rétt áðan þar sem Breiðablik tapaði á móti Hetti/Einherja. Fúlt að tapa svona þegar við kláruðum riðilinn okkar með 18 stig af 18 mögulegum og markatöluna 26-4. Nokkuð gott en við komum í leikinn með sjálfsöryggið í hámarki og við vorum einfaldlega jarðaðir 3-1 eftir að hafa unnið þá í riðlinum 3-0. Svo þurfti það náttúrulega að gerast að ég meiddist í leiknum, fékk hnéð á einum leikmanni Hattar uppí hliðina á hægra lærinu. Og það er sko vondur staður. Ég var nánast dottinn niður stigann hjá mér áðan eftir að lærið gaf sig
.
En förum aðeins útí smá jákvæðari hugleiðingar
. Nú fer ég að byrja í Kvennó af fullum krafti og ég er orðinn virkilega spenntur fyrir því. Og líka með mótorhjól, því ég er aftur kominn með bakteríuna sem ég náði að losa mig við fyrir ári
. En ég er orðinn harðákveðinn í að skella mér á eitt stykki mótorhjól næsta sumar, meira að segja búinn að ákveða hvaða hjól það er
, og hér er það. Kawasaki Eliminator 125cc. Flott að koma á þessu í skólann á næsta ári
. En ég verð víst að fara að drífa mig á verðlaunaafhendingu, vi ses og har en god dag 
Íþróttir | 30.7.2006 | 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frekar lítið verið í gangi núna í sumar, eitt það erfiðasta sem ég hef upplifað. Vakna kl 7:15 í vinnu kl 8-17, æfing svo frá 18-19. Allt ALLT öðruvísi en hin sumurin mín, þá var bara farið í sveit á vorin og svo bara slappað af allt sumarið
. En nú fær maður að kynnast því hvernig er að vinna
.
Veðrið er líka búið að vera nokkuð gott undanfarna daga, sól og mikill hiti, eitthvað sem við Íslendingar viljum venjast en getum því miður ekki
. Rigning, kuldi og fleira sem flestum líkar ekki við.
En nóg komið af vælinu í mér, hér er ein frétt sem ég las á mbl.is:
Leikstjórinn Quentin Tarantino ætlar að nota Dead-boli úr Nonnabúð Jóns Sæmundar Auðarsonar í næstu mynd sína. Myndin ber nafnið Grind House og er hryllingsmynd en tökur hefjast í Texas í ágúst.
Tvær persónur í myndinni koma til með að klæðast fötum frá Dead og leikur Tarantino sjálfur aðra þeirra.
Merki Dead er hauskúpa, sem má segja að sé við hæfi í hryllingsmynd, en dýpri hugsun liggur að baki notkuninni.
Svo kemur ein frábær lína hér eftir hann Jón Sæmund, eiganda Nonna-búðar: „Kúpan finnst mér vera gott sameiningartákn mannkynsins. Öll erum við eins undir skinninu, hvort sem við erum rauð, gul, hvít eða svört. Rasismi og fordómar er eitthvað sem við höfum skapað okkur sjálf. Illskan er komin af mönnunum,“ segir Jón Sæmundur.
Og takið það til ykkar sem eiga, þeir sem hafa einhverja helvítis fordóma
!! En nú verð ég að fara að hætta áður en ég fer að halda einvherja svakalega ræðu um allt það sem ég er á móti
. Ég kveð ykkur í bili.
Og þegi þú Hitler !! (Eða Charlie Chaplin réttara sagt en það gildir einu
)
Tónlist | 8.7.2006 | 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



bjornba
kiddi
olof-hjukka









